Reykjavík Midsummer Music 2013
Kvikmynd
Norðurljós
21. júní, 17.00
Guy Maddin
The Heart of the World (2000)
Tales from the Gimli Hospital (1988)
Tímaskekkja er í lykilhlutverki í sláandi fallegum myndum Guys Maddin. Frægt varð þegar dómnefnd kvikmyndahátíðarinnar í Toronto „náði ekki‟ fyrstu mynd hans, Tales from the Gimli Hospital, sem tekin var upp á 16 mm svarthvíta filmu, og vísaði henni frá keppni sem „illa gerðri‟. Ekkert er jafn fjarri lagi. Við sjáum einnig stuttmyndina The Heart of the World og hlýðum á stutta kynningu Viðars Víkingssonar á þessum óvenjulega listamanni.