Reykjavík Midsummer Music 2013
Post Scriptum
Norðurljós
20. júní, 20.30
Valentin Silvestrov
Post Scriptum (1991)
Mauricio Kagel
Ludwig van (1969)
Mauricio Kagel
MM 51 (1976)
Camille Saint-Saëns
Strengjakvartett nr. 2 (1918)
Mauricio Kagel skekkir tímann í furðulegu verki fyrir píanó og taktmæli og særir fram vofu Beethovens í einu óvenjulegasta hommage verki síðari ára. Við heyrum nostalgískan eftirmála Silvestrovs og einstakt og sjaldheyrt verk, annan strengjakvartett Saint-Saëns, sem tónskáldið samdi á níræðisaldri við lok fyrri heimstyrjaldarinnar. Verk sem hljómar eins og það gæti hafa komið úr penna Beethovens eða Haydns.
Eftir því sem listamenn verða meðvitaðri um það sem á undan er gengið verður sífellt snúnara að skapa verk alveg frá grunni, svo að segja... Þetta hefur ekki í för með sér endalok tónlistar sem listforms heldur endalok sjálfrar tónlistarinnar — endalok sem varað geta lengi. Og það er einmitt í þessum eftirmála sem gífurlegt líf leynist.
—Valentin Silvestrov
Flytjendur Bryndís Halla Gylfadóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir, Una Sveinbjarnardóttir, Víkingur Heiðar Ólafsson, Þórunn Ósk Marinósdóttir.