Reykjavík Midsummer Music 2013
Kvikmynd
Norðurljós
20. júní, 17.00
Mauricio Kagel
Ludwig van (90m)
Tónskáldið og ólíkindatólið Mauricio Kagel gerði kvikmyndina Ludwig van í tilefni 200 ára afmælisárs Beethovens árið 1970. Myndin, sem fyrir löngu hefur öðlast költ-status, er svarthvít og fæst við arfleið Beethovens og hvernig list hans hefur verið pakkað inn í neytendavænar umbúðir. Kvikmyndatónlistin samanstendur af brotum úr ýmsum verkum Beethovens, sem eru unnin og raðað saman þannig að þau hljómi sem inni í höfði heyrnarlauss tónskáldsins.